Nýrri fréttir

05.02.2012  Patrekur náði best 5. sæti
Patrekur Þórarinsson keppti í þremur greinum í flokki 15 ára pilta á Íslandsmóti 15 - 22 ára um helgina. Hann náði best 5. sæti í hástökki, stökk 1.50 metra og setti siglfirskt aldursflokkamet. Í kúluvarpi og langstökki hafnaði hann í 8. sæti. Um 15 piltar voru skráðir til leiks í þessum greinum í flokknum.

 
Patrekur undirbýr sig fyrir atrennuna í hástökkinu

05.02.2012  Arnar varð 8. í kúlunni
Arnar Þór Sverrisson keppti í kúluvarpi í flokki 16-17 ára á Íslandsmóti 15-22 ára í frjálsum um helgina í Reykjavík. Arnar hafnaði í 8. sæti af 13 keppendum með kast uppá 10.12 metra. Arnar er á yngra ári í flokknum og nokkrir þeirra sem voru á undan honum eru 17 ára. Kastað var 5 kílóa kúlu og er þetta í fyrsta sinn sem Arnar keppir með þeirri þyngd og fyrsta sinn sem keppandi frá Glóa í þessum aldursflokki keppir með þá þyng svo hér er um siglfirskt aldursflokkamet að ræða í flokki 15-16 ára.


Arnar var sáttur við árangurinn

02.02.2012  Arnar og Patrekur keppa á MÍ 15-22 ára
Arnar Þór Sverrisson og Patrekur Þórarinsson munu keppa á Íslandsmóti 15-22 ára sem fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík um helgina. Patrekur keppir í þremur greinum í flokki 15 ára pilta og Arnar í sinni grein, kúluvarpi, í flokki 16-17 ára. Íslandsmótið fyrir 11-14 ára fer svo fram í Reykjavík dagana 25.-26. þessa mánaðar og stefnum við að því að þangað fari öflugur hópur frá félaginu.

31.01.2012  Björgvin setti einnig félagsmet
Eins og fyrr segir stóð Björgvin Daði sig frábærlega á Stórmóti ÍR og vann til fernra verðlauna í hlaupagreinum. Hann setti siglfirsk aldursflokkamet í þeim öllum og í 600 metra hlaupinu setti hann einnig félagsmet hjá Glóa er hann hljóp á 1:46.08 mín. Þetta er bæting uppá hvorki meira né minna en 20 sekúndur frá því hann hljóp 600 metrana síðast á Byrmóti UFA í Boganum á Akureyri í nóvember sl. Tími hans er sá 7. besti hjá 13 ára strákum sem náðst hefur á landinu innanhúss frá upphafi. 

Björgvin, fyrir miðri mynd, þýtur af stað í 60 metra hlaupinu
 
31.01.2012  Árangurinn frá Stórmóti ÍR kominn í afrekaskrárnar
Þá er búið að setja árangur okkar keppenda inn í afrekaskrár félagsins hér til hliðar. Það voru þó nokkur afrek sem rötuðu þar inn að þessu sinni og skrárnar halda áfram að lengjast. Í sífellt fleiri greinum eru afrekin að verða 10 talsins í hverjum flokki en það er einmitt hugmyndin að halda utan um 10 bestu afrekin í hverri grein í hverjum aldursflokki í þessum skrám. Í mótaforriti FRÍ er svo hægt að skoða heildarúrslitin frá Stórmótinu sem og öðrum mótum.

31.01.2012  Veikindi settu strik í reikninginn
Það voru þrír iðkendur á fimmtánda ári sem kepptu fyrir Glóa á Stórmóti ÍR og var gengi þeirra ágætt miðað við líkamlegt ástand þeirra. Drengirnir tveir, Patrekur og Romeó, voru báðir nýstignir upp eftir viku skammt af inflúensu og vantaði því neistann í þá og Dóra hefur átt við meiðsl í læri að stríða síðustu vikur og gat því ekki beitt sér að fullu. Hjá báðum kynjum voru keppendur 10-20 talsins, misjafnt eftir greinum. Var okkar fólk í neðri hlutanum í sínum greinum að þessu sinni en reynslunni ríkari. Patrekur setti þó siglfirskt aldursflokkamet í hástökki í flokki 15-16 ára er hann stökk 1.45m en hann á best 1.50m frá síðasta ári.  Dóru gekk einna best í langstökki og bætti árangur sinn í þeirri grein verulega þrátt fyrir meiðslin.

Romeó og Patrekur í kúluvarpskeppninni

30.01.2012  Hin fjögur fræknu!
Helmingurinn af keppendum Glóa á Stórmóti ÍR var úr árgangi 2000 og stóðu þau sig mjög vel, kepptu í mörgum greinum og bættu afrek sín í þeim flestum. Það vakti athygli hvað árangur var góður hjá stúlkum í þessum árgangi á mótinu og hversu fjölmennar þær voru. Þær voru hvorki meira né minna en 50-60 talsins og náðu yfirleitt betri árangri en jafnaldrar sínir af hinu kyninu. Í þessum hópi var ein siglfirsk stúlka, Elín Helga, og náði hún best 8. sæti í kúluvarpi en var um miðjan hóp í hinum fjórum greinunum. Hjá drengjunum náði Guðbrandur Elí bestum árangri. Hann keppti í þremur greinum og gerði sér lítið fyrir og vann til bronsverðlauna í kúluvarpi en var um miðjan hóp í hinum tveimur. Guðmundur Árni keppti í fimm greinum og náði best 13. sæti í kúluvarpi og 600 metra hlaupi. Að lokum er það svo Jóel Heimisson sem sýndi mjög jafna og góða frammistöðu í sínum fjórum greinum. Hann varð 7. í 600 metra hlaupi, 9. í langstökki, 11. í kúluvarpi og 13. í 60 metra hlaupi. Keppendur hjá strákunum voru 30 - 40 í hverri grein.


Hin fjögur fræknu til í slaginn og í stuði!

30.01.2012  Björgvin Daði frábær á Stórmóti ÍR
Þá er Stórmóti ÍR lokið þetta árið. Keppendur voru um 740 frá 24 félögum víða að af landinu sem og frá Færeyjum. Glói sendi 8 keppendur til þátttöku og komu þeir heim með 5 verðlaun þar af vann Björgvin Daði Sigurbergsson til 4. Margar bætingar litu dagsins ljós hjá keppendum okkar og 5 siglfirsk aldursflokkamet féllu. Sem fyrr sagði stóð Björgvin Daði sig frábærlega í flokki pilta 13 ára, kom heim með 1 silfur og 3 bronsverðlaun. Þessi verðlaun hlaut hann öll í hlaupagreinum, silfrið í 600m hlaupi og bronsverðlaunin í 60 metra grindahlaupi, 60 metra spretthlaupi og 200 metra hlaupi. Fimmtu verðlaunin vann Guðbrandur Elí Skarphéðinsson en það voru bronsverðlaun í kúluvarpi hjá 12 ára strákum. Björgvin setti siglfirsk aldursflokkamet í öllum hlaupagreinunum í flokki 13-14 ára og Patrekur Þórarinsson setti aldursflokkamet í hástökki í flokki 15-16 ára. Nánari fréttir af gengi einstakra keppenda koma innan tíðar.

Uppskeran eftir fyrri daginn hjá Björgvini Daða

26.01.2012  Íslandsmótin í febrúar
Íslandsmótin innanhúss í frjálsum íþróttum verða öll haldin í Reykjavík í febrúar. Við stefnum að því að mæta á tvö þeirra með keppendur þ.e. Íslandsmót 15-22 ára sem verður 4. - 5. febrúar og svo mótið fyrir 11 - 14 ára en það fer fram í frjálsíþróttahöllinni 25. - 26. feb. Svo höldum við þeirri hefð að halda mót hér heima í mars og einnig í kringum páskana. Það er sem sagt nóg framundan hjá iðkendum okkar.

Björgvin Daði stóð sig vel á Íslandsmótinu í fyrra

25.01.2012  8 keppendur frá Glóa á Stórmót ÍR
Það verða 8 keppendur frá félaginu sem taka þátt í Stórmóti ÍR í Reykjavík um helgina og keppa þeir alls í 36 greinum. Einhver veikindi hafa verið að hrjá hópinn þannig að kannski ná ekki allir að sýna sitt besta að þessu sinni en við skulum sjá hvað setur. Keppni hefst kl. 9.00 á laugardagsmorgni og ljúka 12 ára og yngri þátttöku sinni á mótinu um kl. 14.00 þann dag. Þau sem eldri eru keppa bæði laugardag og sunnudag. Við reynum að flytja ykkur fréttir af gengi þeirra eins og við höfum tök á en einnig er hægt að sjá úrslitin nokkurn veginn jafn óðum í mótaforritinu á vef Frjálsíþróttasambandsins.

20.01.2012  Íþróttaskólinn hefst á morgun
Íþróttaskóli félagsins hefst loks aftur á morgun, laugardaginn 21. jan. Sem fyrr verður hann í íþróttasalnum við Norðurgötu kl. 12.15. - 13.15 og er fyrir tvo elstu árgangana á leikskólanum þ.e. börn fædd 2006 og 2007. Umsjónarmenn skólans að þessu sinni verða systurnar Jóhanna og Bára Þórisdætur og verður lögð áhersla á alhliða hreyfingu í gegnum ýmsar æfingar, leiki og þrautir og að sjálfsögðu að hafa sem mest gaman. Gjald fram á vor er 5.000 kr.


Mynd úr íþróttaskólanum í fyrravor

18.01.2012  Stórmót ÍR 28. - 29. jan
Stórmót ÍR fer fram um aðra helgi í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík og er þetta fjölmennasta frjálsíþróttamót innanhúss á landinu ár hvert, reikna má með um 800 keppendum. Glói mun taka þátt mótinu líkt og undanfarin 5 ár en keppendur okkar hafa verið 9-11 talsins á hverju móti. 12 sinnum hefur okkur tekist að komast á verðlaunapall á þessum mótum. Keppt er í öllum aldursflokkum 11 ára og eldri og í þrautabraut hjá 10 ára og yngri. 11-12 ára keppa frá 9-13.30 á laugardeginum en eldri aldursflokkarnir bæði laugardag og sunnudag.
Keppendur þurfa sjálfir að sjá um að koma sér suður og útvega sér gistingu en félagið borgar keppnisgjöld og sér um vallarnesti fyrir keppendur. Þegar hafa 7 iðkendur félagsins tilkynnt um þátttöku í mótinu og vonandi sjá fleiri sér fært að vera með, ef svo er vinsamlega látið Tóta þjálfara vita fyrir þriðjudaginn 24. janúar því þá er síðasti skráningardagur á mótið.
 
05.01.2012  Æfingar hefjast 10. jan
Æfingar í frjálsum hefjast að nýju þriðjudaginn 10. janúar, nýir iðkendur eru að sjálfsögðu velkomnir. Fyrsta mót á nýju ári verður Stórmót ÍR sem fer fram í Reykjavík 28. - 29. jan. Undanfarin ár hefur það verið fjölmennasta innanhúsmótið í frjálsum sem haldið hefur verið á landinu ár hvert, hafa keppendur verið á bilinu 650 - 800 talsins. Hafa okkar keppendur náð mjög góðum árangri á mótinu í gegnum tíðina, náð nokkrum verðlaunasætum og oft verið meðal 10 efstu í hinum ýmsu greinum. Nánari fréttir af mótinu verða hér innan tíðar.

María Lillý, til vinstri, á verðlaunapalli á Stórmóti ÍR í fyrra

04.01.2012  58 siglfirsk aldursflokkamet á síðasta ári
Alls voru sett 58 siglfirsk aldursflokkamet af iðkendum félagsins á síðasta ári og eru það jafn mörg met og árið 2010. Aðeins féllu 2 félagsmet en árið áður voru þau 7. Heldur hefur hægt á metafjöldanum síðustu ár, enda afrekin alltaf að batna, þau voru 123 árið 2008 og 67 árið 2009. Vonandi halda metin áfram að falla á nýju ári.

04.01.2012  Afrekin frá Jólamótinu komin inn
Þá eru afrekin sem unnin voru á Jólamótinu okkar loksins komin inn í afrekaskrárnar hér til hliðar. Við höfðum sagt frá því að 7 siglfirsk aldursflokkamet hefðu verið sett á mótinu og 2 jöfnuð en við nánari athugun kom í ljós að þau voru 8 því Björgvin Daði setti 3 met og jafnaði 1. En öll afrekin sem náðu inn á afrekaskrárnar okkar hafa nú verið skráð þar. Skrárnar lengjast með hverju mótinu og afrekin verða betri og betri. 

01.01.2012  Gleðilegt nýtt ár
Félagið óskar iðkendum sínum, fjölskyldum þeirra sem og öllum öðrum gleðilegs árs og þakkar fyrir samskiptin á liðnu ári. Vonum að nýja árið færi okkur gæfu og gengi utan vallar sem innan.

01.01.2012  Salka og Patrekur frjálsíþróttafólk ársins í Fjallabyggð
Sú nýbreytni var tekin upp nú í ár að kjósa besta íþróttafólk í Fjallabyggð, í stað besta íþróttafólks í Ólafsfirði og á Siglufirði. Það voru Kiwanisklúbburinn Skjöldur og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem stóðu saman að kjörinu. Valið var besta íþróttafólkið í hverri grein, strákur og stúlka, í flokki 13-18 ára og síðan einn íþróttamaður í hverri grein hjá 18 ára og eldri. Í frjálsum íþróttum urðu þau Salka Heimisdóttir og Patrekur Þórarinsson fyrir valinu í flokki 13-18 ára og eru þau vel að því komin. Sigurjón Sigtryggsson varð fyrir valinu sem besti íþróttamaðurinn í flokki fatlaðra fyrir árangur sinn í frjálsum íþróttum. En íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2011 var valinn Sævar Birgisson gönguskíðamaður, sem er einn sá allra fremsti í þeirri grein á landinu í dag og stefnir á Ólympíuleikana 2014. Hann keppir fyrir Skíðafélag Ólafsfjarðar en á ættir að rekja til Siglufjarðar.

 
Patrekur, Jóel (sem tók við verðlaunum Sölku systur sinnar) og Sigurjón

24.12.2011  Gleðilega hátíð
Umf Glói sendir ykkur bestu jólakveðjur með von um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við þökkum iðkendum okkar og fjölskyldum þeira ánægjuleg samskipti á árinu og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári.  

24.12.2011  Miklir methafar hjá strákum
Tveir ungir drengir hafa verið ákaflega duglegir við að setja met hjá félaginu undanfarin ár, þeir taka varla þátt í móti nema setja 2-3 met hvor. Þetta eru þeir Björgvin Daði Sigurbergsson og Patrekur Þórarinsson og á þessu varð engin breyting á Jólamótinu okkar á dögunum. Björgvin setti met í langstökki án atrennu, stökk 2,15m, hástökki án atrennu þar sem hann stökk 1,10m og kúluvarpi í flokki 11-12 ára og jafnaði met Patreks í hástökki, í þessum flokki, er hann stökk 1.35m. Patrekur setti tvö met, það var í hástökki- og langstökki án atrennu. Hann stökk 1,20m í hástökki án atrennu og 2,43 án atrennu í langstökki.

23.12.2011  Efnilegar stúlkur
Eins og segir frá hér að neðan voru 7 siglfirsk aldursflokkamet sett á Jólamótinu okkar í ár og tvö jöfnuð. Þarna áttu m.a. þrjár efnilegar stúlkur hlut að máli. Þar ber fyrsta að telja Oddnýju Höllu sem setti met í skutlukasti hjá stúlkum 10 ára og yngri á sínu fyrsta móti, er hún kastaði 13,20m,  og jafnaði met í hástökki án atrennu er hún fór yfir 0,90m. Oddný er aðeins 9 ára og mun því eflaust bæta árangur sinn í þessum flokki á nýju ári. Rut Jónsdóttir setti met í hástökki með atrennu í sama flokki er hún vippaði sér yfir 1.10m og bætti þar með met frænku sinnar Elínar Helgu um 3 sm. En Elín Helga, sem er 11 ára, setti aftur á móti met í flokki 11-12 ára í skutlukasti er hún kastaði 21,20m. Þetta eru efnilegar stúlkur sem eiga framtíðina fyrir sér í frjálsum ef þær halda áfram að æfa af sama krafti og þær hafa gert til þessa. 

22.12.2011  8 met féllu á Jólamótinu og 2 voru jöfnuð
Já, metin halda áfram að falla og efnilegir nýliðar koma enn fram á sjónarsviðið. Alls tóku 18 iðkendur þátt í Jólamótinu í ár, keppt var í 5 greinum, en ekki kepptu þó allir í þeim öllum. Eins og fyrr segir féllu 8 siglfirsk aldursflokkamet og 2 voru jöfnuð. Björgvin Daði setti þrjú met og jafnaði eitt, Patrekur setti tvö met, Elín Helga bætti eitt met sem og frænka hennar Rut Jónsdóttir og Oddný Halla Haraldsdóttir setti eitt met og jafnaði annað á sínu fyrsta móti. Greinilega mikið efni þarna á ferðinni. Úrslit mótsins eru komin inn á mótaforrit Frjálsíþróttasambandins (síða sambandsins er í tenglunum hér við hliðina) en vegna tölvuvandræða eru afrek mótsins ekki komin inn í afrekaskrár félagsins, en það verður fljótt bætt úr því. Nánari fréttir síðar. 

22.12.2011  Íþróttamaður Fjallabyggðar 2011
Þann 28. des verður íþróttamaður Fjallabyggðar valinn í fyrsta sinn auk þess sem bestu íþróttamenn hverrar greinar verða valdir og verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína á árinu. Það eru Kiwanisklúbburinn Skjöldur á Siglufirði og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UÍF) sem standa að valinu. Valdir eru íþróttamenn úr flokkunum 13-18 ára, stelpur og strákar, og 18 ára og eldri samkvæmt rökstuddum tilnefningum frá félögunum innan UÍF. Glói tilnefndi eftirtalda fyrir frjálsar íþróttir, í stafrófsröð. Stelpur 13-18 ára: Franzisca Dóra Úlfsdóttir, Rakel Rut Heimisdóttir og Salka Heimisdóttir. Strákar 13-18 ára: Arnar Þór Sverrisson, Patrekur Þórarinsson og Sigtryggur Tristan Sigtryggsson.

22.12.2011  Jólamótinu lokið - úrslit koma inn í kvöld
Jólamótið okkar fór fram í síðustu viku og tóku alls 18 iðkendur þátt í því. Árangur var nokkuð góður, einhver met féllu og önnur voru jöfnuð. Úrslitin verða sett inn í afrekaskrárnar í kvöld og þá birtum við nánari fréttir af mótinu.

09.12.2011  4 siglfirsk aldursflokkamet á Nóvembermótinu
Alls tóku 23 keppendur þátt í Nóvembermóti félagsins sem fram fór í tvennu lagi. Annan daginn var keppt í kúluvarpi og hinn daginn langstökki og þrístökki án atrennu. 4 met litu dagsins ljós, það voru þeir Björgvin Daði og Patrekur sem settu 2 met hvor í stökkgreinunum. Eru þeir báðir með þeim efstu á landinu í sínum aldursflokki þetta árið. Margir iðkendur bættu afrek sín og einhverjir fengu nöfn sín skráð í afrekaskrár félagins hér til hliðar. Öll afrek mótsins, sem eru nóg góð til að komast þar inn, eru komin í skrárnar. Jólamótið okkar verður í næstu viku og þá verður keppt í fleiri greinum. Nánari fréttir af því innan tíðar.

30.11.2011  Tilvalin jólagjöf fyrir iðkendur
Enn er nóg til af frjálsíþróttapeysunum hjá okkur og því væri tilvalið fyrir foreldra að skella einni í jólapakkann hjá iðkendum í frjálsum íþróttum, peysan kostar 5000 kr. Peysurnar eru til sölu hjá Tóta formanni og hann verður með þær á markaðnum hjá Rauðku næsta laugardag. Þegar farið er á mót utan fjarðar eiga börnin að klæðast slíkum peysum svo auðveldara sé að halda hópnum saman. Næsta mót af slíku tagi verður Stórmót ÍR í Reykjavík í lok janúar.

Hér má sjá nokkra hressa iðkendur í peysunum góðu eftir mót á Akureyri 

16.11.2011  Patrekur bætti eigin met í öllum greinum
Patrekur Þórarinsson tók þátt í 4 greinum á Nóvembermóti UFA á dögunum í flokki 14-15 ára. Í öllum greinum bætti hann sig og setti siglfirsk aldursflokkamet. Keppendur voru fáir í þessum flokki en brotfall úr íþróttum er því miður mikið á þessum aldri og því mikill munur á fjölda þátttakenda í eldri flokkum miðað við þá yngri. Árangurinn er samt sem áður góður hjá Patreki og er hann meðal þeirra efstu í sínum aldursflokki í nokkrum greinum á árinu.
 
14.11.2011  Tveir efnilegir 11 ára strákar
Í flokki stráka 10-11 ára kepptu tveir siglfirskir drengir í 5 greinum hvor á Nóvembermóti UFA í Boganum á Akureyri, stóðu þeir sig mjög vel. Guðmundur Árni Andrésson náði best 3. sæti í skutlukasti og var um miðjan hóp í hinum greinunum. Bætti hann árangur sinn í öllum greinum. Hjörvar Már Aðalsteinsson var í verðlaunasætum í 4 greinum af 5 og setti siglfirskt aldursflokkamet í 60m grindahlaupi. Hann varð í 2. sæti í skutlukasti og 3. sæti í langstökki, hástökki og 60m grindahlaupi. Afrek mótsins eru komin inn í afrekaskrárnar hér til hliðar.  

14.11.2011  Fyrsta mót Rutar, Elín bætti eigið met
Á Nóvembermóti UFA á Akureyri á laugardaginn kepptu tvær siglfirskar stúlkur í flokki 10-11 ára. Rut Jónsdóttir er á yngra ári í flokknum og var að keppa á sínu fyrsta móti. Hún er fyrsta stúlkan í þessum flokki sem keppir í skutlukasti fyrir félagið og því var árangur hennar þar aldursflokkamet hjá 10 ára og yngri. Hún keppti í þremur öðrum greinum og gekk ljómandi vel, var hún um miðjan hóp í þeim öllum en keppendur í þessum flokki voru um 15 talsins.
Elín Helga er öllu keppnisreyndari, keppti hún í 5 greinum, bætti sig í þremur þeirra og sló eigið aldursflokkamet í skutlukasti. Hún varð í 2. sæti í skutlukastinu, 3. í hástökki og langstökki og 4. í 60m grindahlaupi og 60m hlaupi.

13.11.2011  7 siglfirsk aldursflokkamet á Akureyri
Það hefur verið mikið um að vera í íþróttalífinu hjá siglfirskum ungmennum að undanförnu. Badmintonmót á Akureyri um síðustu helgi, knattspyrnuleikir á Akureyri í vikunni auk hefðbundinna æfinga. Það voru því aðeins 5 iðkendur sem mættu til leiks frá félaginu á Nóvembermót UFA sem fór fram í Boganum í gær en árangur þeirra var samt sem áður með ágætum. Keppendur á mótinu voru rúmlega 100, flestir í yngri flokkunum. Okkar keppendur settu 7 siglfirsk aldursflokkamet að þessu sinni, Patrekur Þórarinsson flest eða fjögur talsins og þau Hjörvar Már Aðalsteinsson, Elín Helga Þórarinsdóttir og Rut Jónsdóttir eitt hvert. Varð okkar fólk í verðlaunasætum í 12 af þeim 23 greinum sem það keppti í. Nánari fréttir á morgun af gengi einstakra keppenda. Nokkrar myndir til viðbótar eru í myndaalbúminu Frjálsar 2011-2012.


Rut, Elín Helga, Guðmundur og Hjörvar á Akureyri í gær

09.11.2011  Mót á Akureyri á laugardag
Við stefnum á að taka þátt í okkar fyrsta innanhúsmóti á þessum vetri um næstu helgi. Þá fer fram mót hjá UFA í Boganum á Akureyri. Keppt er í flokkum 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri. Keppnisgreinar eru hástökk, langstökk, kúla, 60m hlaup, 60m grindahlaup og 600m hlaup, einnig verður keppt í skutlukasti hjá 13 ára og yngri og 4x200m boðhlaupi hjá öllum flokkum. Mótið hefst kl. 10.30 og því lýkur um kl. 15.00. Þátttökugjald er kr. 1.000 á einstakling. Foreldrar þurfa að koma börnum sínum á mill staða. Hafið samband við Tóta þjálfara sem fyrst ef þið viljið keppa og hafið tök á að fara.

28.10.2011  Greiðsla æfingagjalda
Æfingagjald til áramóta í frjálsum er 6.000 kr. Hægt er að greiða það beint inn á reikning félagsins og setja nafn barnsins með sem skýringu. Reikningsnr. og kennitölu má sjá hér til hliðar. Einnig er hægt að greiða með Frístundastyrk Fjallabyggðar eða greiða beint til þjálfara. Vinsamlega greiðið sem fyrst. 

18.10.2011  Guðrún Ósk frjálsíþróttakona UMSS
Á uppskeruhátíð UMSS um síðustu helgi var Guðrún Ósk Gestsdóttir kjörin frjálsíþróttakona ársins hjá Skagfirðingum og er einnig tilnefnd sem íþróttamaður ársins í Skagafirði. Eins og fólki er kunnugt er Guðrún Ósk Siglfirðingur og hóf feril sinn í frjálsum hjá Glóa. Hún sýndi strax að hún var efni í góða íþróttakonu og náði frábærum árangri á ýmsum mótum fyrir hönd Glóa. Til að geta vaxið og dafnað enn frekar í sinni íþrótt ákvað hún að flytja sig til UMSS fyrir um tveimur árum síðan, þar sem betri aðstæður til æfinga eru fyrir hendi og hefur hún verið í stöðugri framför síðan þrátt fyrir að hafa átt í meðslum á tímabili. Guðrún er ein af efnilegustu frjálsíþróttakonum landins og á um 10 árangra inn á Topp 10 í hinum ýmsu greinum í sínum aldursflokki eftir sumarið, samkvæmt afrekaskrám frjálsíþróttasambandins, en hennar sterkustu greinar eru langstökk og grindahlaup.  Óskum við Guðrúnu Ósk innilega til hamingju með árangurinn. 

Guðrún í keppni fyrir Glóa á Íslandsmóti á Laugum sumarið 2008 

09.10.2011  Minnum á nýju peysurnar
Í vor voru keyptar nýjar peysur fyrir iðkendur félagsins og eru þær til sölu hjá Tóta formanni. Þær kosta 5000 kr., eru merktar félaginu að framan og með áletruninni FRJÁLSAR að aftan. Þeir sem hafa áhuga á að eignast peysu geta bankað uppá með aurinn hjá formanninum.


Guðbrandur og Guðmundur í nýju peysunum á móti á Akureyri í sumar

09.10.2011  Æfingar fara vel af stað
Inniæfingar eru nú komnar á fullt og fara mjög vel af stað. Nokkrir nýir iðkendur hafa bæst í hópinn og lofa góðu. Á síðustu æfingu voru mættir 20 krakkar frá 4-10 bekk og var vel tekið á. Fyrsta mót vetrarins verður hér heima í nóvember og svo höldum við okkar árlega jólamót í desember. 

04.10.2011  Meiri tölfræði
Eins og segir frá hér að neðan hefur verið vel haldið utan um afrek okkar fólks í frjálsum allt frá því að við hófum að taka þátt í frjálsíþróttamótum. Fjöldi meta hefur verið settur á hverju ári þó svo að heldur hafi dregið úr síðustu ár enda verður árangurinn sífellt betri og því erfiðara að bæta metin. Fjölmargir iðkendur eiga aldursflokkamet hjá félaginu í hinum ýmsu greinum en þetta eru þeir sem eiga flest metin, innanhúss og utan:
Patrekur Þórarinsson                25
Svava Stefanía Sævarsdóttir     22
Björgvin Daði Sigurbergsson     20
Guðrún Ósk Gestsdóttir            18
Snævar Már Gestsson               17
Salka Heimisdóttir                     17
María Lillý Ragnarsdóttir           12
Elín Helga Þórarinsdóttir           12
Þórarinn Hannesson                  8
Arnar Þór Sverrisson                  7

Patrekur á flest aldursflokkamet hjá félaginu um þessar mundir

03.10.2011  Fréttir af metum
Allt frá upphafi þátttöku okkar fólks í frjálsíþróttamótum hefur formaður félagsins haldið til haga afrekum okkar iðkenda og núna síðustu ár hafa skrár yfir þau verið sýnileg hér á heimasíðu félagsins. Þar má sjá afrekaskrár bæði innanhúss og utan þar sem 10 bestu afrekin í hverri grein og í hverjum aldursflokki hjá báðum kynjum eru listuð upp. Einnig eru skrár yfir félagsmet og aldursflokkamet og þetta má allt sjá í listanum hér til hliðar. Hafa iðkendur félagsins haft gaman af að keppa að því að bæta afrek þeirra sem eldri eru. Þessar skrár lengjast með hverju árinu og afrekin batna, eins og lög gera ráð fyrir. Heldur hefur hægt á metafjöldanum sem er settur á hverju ári en þó falla enn töluvert mörg árlega. Árið 2008 voru sett 123 siglfirsk aldursflokkamet og 35 félagsmet hjá félaginu, árið 2009 urðu aldursflokkametin 67 og félagsmetin 8, árið 2010 féllu 58 aldursflokkamet og 7 félagsmet og það sem af er þessu ári hafa fallið 39 aldursflokkamet og 2 félagsmet. Iðkendur félagsins munu taka þátt í nokkrum mótum fram til áramóta svo enn má búast við að met falli.

28.09.2011  Inniæfingar hefjast fimmtudag 29. sept
Þá er komið að því að inniæfingar í frjálsum hefjist. Þær verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16.00-17.00 og eru fyrir krakka í 4. -10. bekk. Fyrsta æfing er á morgun, fimmtudag, og sem fyrr er Þórarinn Hannesson þjálfari. Æfingagjald til jóla er 6.000 kr.

22.09.2011  Útiæfingum lokið
Nú er útiæfingum lokið en inniæfingar hefjast innan skamms og munum við auglýsa tímasetningar þeirra hér á síðunni um helgina. Sem fyrr eru æfingarnar fyrir krakka í 4. - 10. bekk og vonum við að sem flestir komi og finni sig í frjálsum.

06.09.2011  2. Kastmót félagsins var í gær - 5 met féllu
Í gær héldum við 2. Kastmót félagsins þetta haustið og greinilegt er að æfingar síðustu vikna eru að skila sér. Sett voru 5 siglfirsk aldursflokkamet. Björgvin Daði Sigurbergsson mætti sterkur til leiks á sitt fyrsta mót í sumar og setti met í flokki 11-12 ára með 3 kg. kúlu, kastaði 8.14m. Patrekur Þórarinsson hélt áfram að bæta eigin met í flokki 13-14 ára, að þessu sinni í kringlu þar sem hann bætti sig um heila 7 metra og í kúlu þar sem bætingin var um hálfur meter. Armar Þór Sverrisson setti svo tvö met í flokki 15-16 ára bætti spjótkastmetið um rúma tvo metra og hann var sá fyrsti sem kastaði 1 kg kringlu í þessum aldursflokki hjá félaginu og það því met. Lengsta kastið hans var tæpir 28 metrar og er það sjöunda lengsta kastið í hans aldursflokki á landinu í sumar.  Hjörvar Már Aðalsteinsson bætti sig einnig verulega í kringlukastinu, kastaði rúma 22 metra, sem er næst lengsta kastið á landinu frá upphafi á landinu hjá 11 ára strák samkvæmt afrekaskrám Frjálsíþróttasambandsins.  Búið er að færa afrek mótsins inn í afrekaskrár félagsins.

Armar Þór í kúluvarpskeppni á Akureyri á dögunum

05.09.2011  Ljóðahátíðin Glóð verður 15.-17. september
Ljóðahátíðin Glóð fer að bresta á og stendur lokaundirbúningur yfir þessa dagana. Sem fyrr eru það Glói og Félag um Ljóðasetur Íslands sem standa saman að hátíðinni og verður hún með svipuðu sniði og undanfarin ár nema nú er Ljóðasetrið orðið að veruleika hér á Siglufirði og þar verða nokkrir viðburðir.

02.09.2011  Bronsið var málmur gærdagsins
Í gær var seinni dagur Aldursflokkamóts UMSE á Akureyri og aftur mættu 6 keppendur frá félaginu til leiks. Blíðskaparveður var og aðstæðu hinar bestu til að gera góða hluti. Patrekur Þórarinsson gerði það gott í flokki 14-15 ára, keppti í þremur greinum og hlaut bronsverðlaun í þeim öllum. Bætti sig í langstökki og spjóti, þar sem hann bætti einnig eigið aldursflokkamet hjá félaginu. Elín Helga, systir hans, vann til bronsverðlauna í kúluvarpi hjá stúlkum 10-11 ára og drengirnir í sama aldursflokki gerðu það líka gott í kúlunni. Þar vann Guðbrandur til silfurverðlauna, Hjörvar Már til bronsverðlauna og Guðmundur varð í 5. sæti. Bættu þeir allir afrek sín verulega. Formaðurinn skellti sér svo í tvær greinar í karlaflokki, vann til bronsverðlauna í kriglukasti og vippaði sér yfir 1.56m í hástökki sem er næst besti árangur sem náðst hefur í hans aldursflokki frá upphafi á landinu.


Patrekur, lengst til hægri, á verðlaunapallinum


Guðbrandur og Hjörvar með sínar medalíur


Það var farið að rökkva þegar mótinu lauk

01.09.2011  Gull, silfur og brons á Akureyri
Fyrri keppnisdagurinn á Aldursflokkamóti UMSE var í gær og tóku 6 keppendur frá Glóa þátt í alls 17 greinum. Eitthvað var um bætingar og eitt siglfirskt aldursflokkamet leit dagsins ljós en það var í boltakasti hjá strákum. Í fyrsta sinn kepptu 11 ára drengir í þeirri grein og eftir keppni gærdagsins á Hjörvar Már Aðalsteinsson metið í flokki 11-12 ára stráka hjá félaginu. Hann kastaði 38.06 metra og fékk silfurverðlaun fyrir vikið, Guðbrandur Elí varð 4. í sömu grein og Guðmundur Árni 6. Keppt var í flokki 10-11 ára og tóku tæplega 20 strákar þátt. Hjörvar náði einnig 4. sæti í 60m hlaupi en í öðrum greinum voru siglfirsku drengirnir um miðjan hóp. Elín Helga keppti í sama aldursflokki hjá stúlkum en þær voru rúmlega 20 talsins. Hún gerði sér lítið fyrir og vann sigur í boltakasti, með nokkrum yfirburðum, varð 4. í hástökki og um miðjan hóp í öðrum greinum. Salka Heimisdóttir á við meiðsli að stríða og náði sér ekki alveg á strik, varð hún um miðjan hóp í sínum þremur greinum í flokki 12-13 ára stúlkna. Formaðurinn tók svo fram gömlu spjótkastskóna og náði bronsinu í spjóti í karlaflokki, móti keppendum sem flestir voru 20-30 árum yngri. Náði hann þriðja lengsta kasti sem náðst hefur á landinu í hans aldursflokki frá upphafi.

 
Guðbrandur, Hjörvar, Bjartmar, Guðmundur og Elín Helga
 
29.08.2011  Arnar Þór varð sjötti á MÍ
Arnar Þór Sverrisson keppti í kúluvarpi í gær á Íslandsmóti 15-22 ára, en mótið fór fram á Akureyri. Arnar hafnaði í 6. sæti í flokki 15 ára drengja með kast upp á 10.80 metra og vantaði ekki marga sentimetra til að ná 4. sætinu, en þrír efstu voru í nokkrum sérflokki. Þetta var fyrsta mót Arnars utanhúss í ár. Hann bætti árangur sinn frá því inni í vor um tæpan hálfan meter og bætir sig vonandi enn meir á komandi kastmótum hér heima.


Arnar leggur af stað í atrennuna
  
27.08.2011  Stefnt á Aldursflokkamót UMSE í vikunni
Á miðvikudag og fimmtudag fer Aldursflokkamót UMSE fram á Akureyri og stefnum við að því að senda nokkra keppendur til leiks. Keppt er í fjölmörgum greinum í yngri aldursflokkunum og hafa iðkendur okkar gott af því að spreyta sig gegn Eyfirðingunum.

27.08.2011  Arnar Þór keppir í kúlu á Íslandsmótinu 
Á morgun mun Arnar Þór Sverrisson keppa í kúluvarpi í flokki 15 ára á Íslandsmóti 15-22 ára sem fer fram á Akureyri þessa helgi. Sjö keppendur eru skráðir í kúluvarpi og eru helstu kastarar landsins á þessum aldri mættir til leiks. Gaman verður að sjá hvernig Arnari tekst til að þessu sinni en gegnum árin hefur 4. sætið oft verið hans hlutskipti á stórmótum. Segjum ykkur fréttir af kappanum að lokinni keppni.

27.08.2011  Gott gengi á Króknum
Iðkendur félagsins stóðu sig vel á Fimmtudagsmóti UMSS á Sauðárkróki á dögunum og margir bættu sig. Alls tóku 7 keppendur frá Glóa þátt og kepptu flestir í tveimur greinum. Tvö met féllu hjá félaginu Sigurjón Sigtryggsson bætti eigið félagsmet í 300 metra hlaupi, hljóp hann mjög vel og bætti sig um tæpar 4 sekúndur frá því í fyrra. Patrekur Þórarinsson bætti svo glænýtt aldursflokkamet sitt í spjótkasti með 600 gr spjótinu. Afrekin allra keppenda eru komin í afrekaskrána og nokkrar myndir í myndaalbúmið Frjálsar 2011-2012.


Frænkurnar Salka og Elín Helga í hástökkskeppninni

24.08.2011  Fyrsta kastmót sumarsins 
Á dögunum héldum við fyrsta kastmótið okkar í sumar og þar náðist ágætis árangur. Keppendur voru 6 talsins og keppt var í þremur greinum: spjóti, kringlu og kúlu. Keppt var samkvæmt nýjum reglum um þyngdir kastáhalda og litu þrjú aldursflokkamet dagsins ljós vegna þess en eitt vegna bætinga á fyrri árangri. Það var Patrekur Þórarinsson sem var að verki í þremur tilfellum, bætti hann met Arnars Þórs Sverrissonar í kúluvarpi með 4 kg. kúlu og var sá fyrsti í aldursflokknum 13-14 ára sem kastar 1 kg. kringlu og 600 gr. spjóti. Salka Heimisdóttir var sú fyrsta í sama aldursflokki til að keppa með 2 kg. kúlu og setti þar með met. Aðrir keppendur náðu fínum árangri og allir bættu sig verulega frá fyrra ári. Elín Helga Þórarinsdóttir náði m.a. lengsta kasti hjá 11 ára stúlku á landinu í ár í spjótkasti og Hjörvar Már Aðalsteinsson náði lengsta kasti hjá 11 ára dreng á landinu í ár í kringlukasti. Afrek frá mótinu eru komin inn í afrekaskrána hér til hliðar.


Hjörvar og Elín Helga eru efnilegir kastarar

16.08.2011  Mót á Sauðárkróki á morgun
Á morgun munu 6 keppendur frá félaginu taka þátt í Fimmtudagsmóti UMSS á Sauðárkróki. Keppt er í hinum ýmsu greinum þar sem keppendur leitast við að bæta árangra sína en ekki er keppt til verðlauna á þessum mótum. Við látum ykkur vita hvernig gengi þeirra verður.

03.08.2011  Næsta æfing á laugardag kl. 10.30
Í dag hófust æfingar í frjálsum að nýju og hér fyrir neðan má tímasetningar þeirra. Aukaæfingar verða á laugardögum, þegar kostur er, og næsta æfing verður á laugardaginn kl. 10.30.

03.08.2011  Loksins, loksins hefjast æfingar
Jæja, þá er loks komið að því að æfingar hefjast. Þær verða á mánudögum og miðvikudögum kl. 18.15 - 19.15 og eru fyrir börn fædd 2002 - 1996. Einnig verður boðið upp á aukaæfingar kl. 10.30 á laugardögum þegar kostur er á og lætur þjálfari vita miðvikudaginn áður þegar þær eru. Æfingarnar fara fram á svæðinu við Mjölhúsið eins og undanfarin ár. Þessi æfingatafla gildir næstu vikurnar en látið verður vita þegar hún breytist en það verður þegar tímatafla rútuferðanna milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar breytist. Þjálfari verður sem fyrr Þórarinn Hannesson.

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 51
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 50015
Samtals gestir: 23089
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 01:53:10